Í sumar héldum við Töfrabarnanámskeið þar sem við unnum með styrkleika, hugrekki, góðvild, vináttu, samkennd, tilfinningar, seiglu og gróskuhugarfar.

Við gerðum alls konar skemmtileg og skapandi verkefni. Börnin bjuggu meðal annars til gleðigogg og veltu fyrir sér hvað færir þeim gleði, unnu með tröllaleir, léku sér með tilfinningablöðrur og lærðu að þekkja og tjá ólíkar tilfinningar. Þau bjuggu líka til kærleikssteina sem minna á góðvild og styrk. Við ræddum um að enginn þarf að kunna allt strax, að æfingin skapar meistarann og að mistök eru mikilvægur hluti þess að læra og vaxa.

Leiklist, tónlist, jóga, núvitund, hreyfing og leikir fléttuðust inn í dagana. Stundum var mikið hlegið og sprellað, stundum þurfti að einbeita sér og þora að prófa eitthvað nýtt og stundum gáfum við okkur einfaldlega tíma til að staldra við og finna hvað væri að gerast innra með okkur.

Í lok námskeiðsins fóru börnin heim með poka fullan af litlum fjársjóðum sem þau höfðu skapað. Hvert verkefni hafði sína sögu og hugmynd að baki – og var um leið lítil áminning um eitthvað sem við höfðum lært og æft saman.

Við vonum að fræin sem sáð var á Töfrabarnanámskeiðinu – fræ hugrekkis, góðmennsku, sjálfstrausts, vináttu og gleði  haldi áfram að spíra og vaxa með börnunum.

✨ Töfrarnir eru í þér! ✨